Slysavarnadeildin Þórkatla gaf UMFG hjartastuðtæki að gjöf á aðalfundi deildarinnar á dögunum. Aðalstjórn UMFG ákvað að láta knattspyrnudeildina hafa tækið og verður það til taks í fjölnota íþróttahúsinu Hópinu og á Grindavíkurvelli yfir sumartímann.
Milli jóla- og nýárs fékk knattspyrnumaður í firmamóti hjartastopp. Ekkert hjartastuðtæki er fyrir hendi í íþróttahúsinu og því þurfti að hlaupa yfir í sundlaugina til þess að ná í tækið þar sem Þórkatla og Kvenfélag Grindavíkur gáfu 2004. Sem betur fer fór allt vel að lokum en þarna sannaðist að nauðsynlegt er að hafa tæki í íþróttahúsinu. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur gaf hjartastuðtæki í íþróttahúsið á dögunum og því eru öll íþróttamannvirki bæjarins komin með slík tæki.