Grindavík var eitt af sjö liðum af tólf í úrvalsdeild karla í knattspyrnu sem fékk þátttökuleyfi í sumar þegar leyfisráð KSÍ fór yfir gögn félaganna í gær. Fimm félög fengu frest til að klára sín mál. Til þess að fá keppnisleyfi í úrvalsdeildinni þarf að uppfylla ströng skilyrði um mannvirki, aðstöðu, fjárhagslegar kröfur, starfsmannahald og menntun allra þjálfara hjá knattspyrnudeildinni. Grindavík fékk keppnisleyfi án athugasemda.