Sú hefð hefur skapast í grunnskóla Grindavíkur að fyrir árshátíð skólans fer 10. bekkur saman út að borða, að þessu sinni í Salthúsinu. Þetta glæsilega unga fólk sem útskrifast úr grunnskólanum í vor skartaði sínu fegursta og lék á alls oddi. Á boðstólum var þriggja rétta úrvals máltíð þar sem pabbarnir þjónuðu til borðs og stjönuðu við krakkana í hvívetna. 10. bekkur sem fæddist 1994 og útskrifast að þessu sinni frá grunnskólanum er fjölmennasti árgangur grunnskólans frá upphafi.
Eftir þessa skemmtilegu kvöldmáltíð var nemendur 10. bekkjar skutlað með viðhöfn í skólann á árshátíðina þar sem hljómsveitin Ingó og Veðurguðirnir lék fyrir dansi fyrir 5. til 10. bekk. Ballið tókst í alla staði frábærlega vel og voru nemendur skólans til fyrirmyndar.
Ljósmyndirnar voru teknar á Salthúsinu í gærkvöldi.