Nóg var um að vera á fjórða degi menningarvikunnar þar sem tónlist, árshátíðarleikrit og bátasagnfræði var í fyrirrúmi. Fjölbreytnin var í fyrirrúmi í dag því leikskólakrakkar, grunnskólanemendur, sjóarar og eldri borgarar fengu sannarlega eitthvað við sitt hæfi.
Á leikskólanum Laut var foreldrakaffi í morgun þar sem börn á yngri deildum sungu og spiluðu á heimagerð hljómfæri. Óhætt er að segja krakkarnir hafi verið mjög hugmyndaríkir í listasmíð sinni og tókst þeim að framkalla skemmtileg hljóð.
Í Víðihlíð voru um 50 manns á tónleikum þar sem hinar einu og sönnu Friðarliljur tóku lagið. Eldri borgarar Grindavíkur kunnu sannarlega vel að meta Friðarliljurnar sem hafa sungið sig inn í hjörtu allra Suðurnesjabúa undanfarin misseri.
Í dag var árshátíð unglingastigsins í grunnskólanum þar sem frumsýnt var leikritið Dúkkulísa. Frumsýningin tókst frábærlega vel en nánar verður fjallað um leikritið á heimasíðunni á morgun. Á árshátíðinni léku svo Ingó og Veðurguðirnir og var mikil stemmning í skólanum.
Á Bryggjuna mættu góðir gestir þar sem fjallað var um bátasagnfræði. Ólafur Þórarinsson lék á harmonikku en síðan tók Grímur Karlsson við en hann er þekktastur fyrir að hafa smíðað ótal líkön af flestum fiskibátum sem sigldu undir íslenskum fána á síðustu öld. Grímur sagði aðallega frá upphafsárum síldveiða á Íslandi og hvernig ótrúlegar tilviljanir leiddu til þess að Íslendingar eignuðust síldveiðiflota á slikk frá Englendingum og lyftu sér úr örbirgð í að verða velmegandi þjóð á algjörum mettíma. Var fyrirlestur hans ákaflega fróðlegur og skemmtilegur. Þá tók söngtríóið Sárabót nokkur lög en nánar um það í annarri frétt.