Brotist inn í Gula húsiđ
Brotist inn í Gula húsiđ

Í nótt var brotist inn í Gula húsið, félagsheimili knattspyrnudeildar. Ljóst er að einhver sem þekkir til starfsemi hússins braust þar inn því eftir að hafa spennt upp glugga og skemmt hann fór innbrotsþjófurinn beint inn á skrifstofu knattspyrnudeildar og braut upp skúffur þar sem verðmæti eru geymd. Að þessu sinni hafði innbrotsþjófurinn lítið upp úr krafsinu en skemmdir urðu á innanstokksmunum. Þeir sem urðu varir við mannaferðir í bænum í nótt, sérstaklega nálægt Gula húsinu, eru beðnir að láta lögreglu vita.

Þetta er í þriðja sinn á rúmi ári sem brotist er inn í Gula húsið.