3 dagar í menningarviku - Delizie Italiane (ítalskt góđgćti) skemmtir í Saltfisksetrinu
3 dagar í menningarviku - Delizie Italiane (ítalskt góđgćti) skemmtir í Saltfisksetrinu

Tríóið ,,DELIZIE ITALIANE" (ítalskt góðgæti) verður með tónleika í Saltfisksetrinu á menningarviku, laugardaginn 20. mars kl. 17. DELIZIE ITALIANE var stofnað í september árið 2000 í tengslum við mikinn áhuga meðlima á víni, matargerð og suðrænni menningu.

Tónlistin var eins og punkturinn yfir i-ið eða „come il parmiggiano sulla pasta", og þar blandast tónlistar- og menningarheimur Leone Tinganellis sem kemur frá Napóli, við menningarheim tveggja íslenskra Jóna með gjörólíkan bakgrunn í tónlist.

Það tók þá félaga dálítinn tíma að finna rétta hljóminn í byrjun þar sem ekki var stuðst við neina fyrirmynd, en þeir telja sig nú vera búna að finna hinn eina sanna Delizie hljóm, - þar er einfaldleikinn er hafður í fyrirrúmi.

Delizie Italiane hefur komið fram við margvísleg tækifæri þar sem aðaláherslan er lögð á þægilega og ljúfa ítalska stemmningu og þarf nú varla að minnast á að þessi tónlist passar sérlega vel við mat og drykk.

Fyrir fjórum árum gáfu þeir út geisladiskinn Passione sem inniheldur 18 söngperlur frá Napólí sem spanna tímabilið allt frá um 1500 fram á okkar daga og fékk hann afar góðar móttökur og árið 2008 kom út nýr diskur og ber hann einfaldlega heitið Delizie Italiane.
Á þeim diski koma lögin hins vegar frá mismunandi hérðuðum Ítalíu. Flest laganna voru í upphafi alþýðusöngvar en eru nú orðin klassísk sönglög sem eru flutt jafnt í virtum óperuhúsum sem og á götuhornum um heim allan, - lög eins og Funiculí funiculá, Bounasera signorina, Volare, Santa lucia, Arrivederci Roma og Tu vuó fá l´ Americano.

 


- Leone Tinganelli : söngur og gítar
- Jón Elvar Hafsteinsson : gítar og söngur
- Jón Rafnsson : kontrabassi og söngur