Menningarvikan - Óp-hópurinn međ tónleika í Saltfisksetrinu
Menningarvikan - Óp-hópurinn međ tónleika í Saltfisksetrinu

Sunnudagskvöldið 14. mars kl. 20:00 verður Óp-hópurinn með tónleika í Saltfisksetrinu í Grindavík en þeir eru hluti af menningarvikunni.  Á dagskrá verða sungin og leikin atriði úr ýmsum óperum og óperettum. Aðgangur er ókeypis en tónleikarnir eru í boði Grindavíkurkaupstaðar.

Óp-hópurinn hefur verið með hádegistónleika í allan vetur í íslensku óperunni, þar sem hann hefur flutt bæði með söng og leik senur úr ýmsum óperum, við miklar vinsældir, auk þess hefur hann komið fram í Duus-húsum í Keflavík, Hafnarborg í Hafnarfirði og í Stokkalæk á Rangárvöllum.

Óp-hópinn skipa þau Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Erla Björg Káradóttir, Hörn Hrafnsdóttir, Jóhanna Héðinsdóttir, Jón Svavar Jósefsson, Rósalind Gísladóttir (kennari við Tónlistarskóla Grindavíkur) og Rúnar Þór Guðmundsson, um píanóleik sér Antonía Hevesi.

Þess má geta að Þau Bylgja Dís og Rúnar Þór lentu í fyrsta og öðru sæti í alþjóðlegu söngvarakeppninni Barry Alexander International Vocal Competition nú í byrjun árs og er Bylgja Dís nýkomin frá New York þar sem hún söng í Carnegie Hall.

Nú gefst Grindvíkingum tækifæri til að koma og skemmta sér við söng og leikgleði Óp-hópsins.

Óp-hópurinn fékk frábæra gagnrýni um daginn hjá Lostafulla listaræningjanum sem er útvarpsþáttur á RÚV:
Set hér fyrir neðan brot af þeirri gagnrýni.

02. desember 2009

BESTI SKYNDIBITINN Í BÆNUM
HÁDEGISTÓNLEIKAR ÓP-HÓPSINS: TVÍMÆLALAUST BESTI SKYNDIBITINN Í BÆNUM

Lostafullir listræningjar á vegum samnefnds þáttar í Ríkisútvarpinu sóttu hádegistónleika Óp-hópsins síðastliðinn þriðjudag og ræddu síðan tónleikana í þættinum um síðustu helgi.

Er skemmst frá því að segja að listræningjarnir Birna Þórðardóttir og Friðrik Sólnes, ásamt þáttastjórnandanum Jórunni Sigurðardóttur, voru hæstánægðir með tónleikana. Tók Birna þannig til orða að hádegistónleikar Óp-hópsins, sem eru mánaðarlega í Íslensku óperunni, væru tvímælalaust besti skyndibitinn í bænum.

Önnur ummæli um tónleikana í þættinum voru:

Skemmti mér konunglega.... skælbrosti allan tímann.

Sjarmerandi... lekur af þeim sjarminn.

Virkilega flott

Hreinasta dásemd..
Greinilega allt hámenntaðir söngvarar og leikarar