Konukvöld körfuboltans
Konukvöld körfuboltans

Hið eina sanna styrktarkvöld körfuknattleiksdeildar kvenna verður haldið föstudaginn 19. mars í Eldborg. Húsið opnar kl 19.30 með fordrykk. Forsala aðgöngumiða verður í PALÓMA og hefst mánudaginn 8. mars. Miðaverð er 4.900 kr. Dagskráin er á heimsmælikvarða:

Dagskrá:
-  Veislustjórar eru engir aðrir en hinir „frábæru sexý erótísku óperu ídýfur" DAVÍÐ OG STEFÁN sem sjá um óvæntar uppákomur.

- FM stjarnan Sigga Lund mætir með skemmtilega uppákomu.

- Austurlenskt hlaðborð að hætti Láka og Hajie.

- Kynningar á skartgripum frá Palóma föt og skart.

- Kynning á skóm og veskjum frá Gyðjunni. Nýja línan frá París, hver vill ekki vera eins og Paris Hilton eða Kylie Minouge.

- Tískusýning á nýjustu línunni frá DESIGUAL, Palóma föt og skart.

- Valin verður kona kvöldsins og fær hún að gjöf glæsilegan skartgrip.

- Happdrætti, frábærir vinningar.

Sætaferðir verða frá Eldborg að loknu konukvöldi. Verð 500 kr. pr. mann.