Stelpurnar í sumarfrí
Stelpurnar í sumarfrí

Grindavíkurstelpur töpuðu fyrir Haukum í umspili úrvalsdeildar kvenna í körfubolta 81-74 og eru þar með úr leik og komnar í sumarfrí. Þetta eru að sjálfsögðu mikil vonbrigði fyrir stelpurnar sem klárlega ætluðu sér stærri hluti í deildinni í vetur.

Staðan í hálfleik var 41-38 Haukum í vil en Grindavík hafði eins stigs forskot, 57-56, eftir þrjá leikhluta. Lokasprettur leiksins var æsispennandi en Haukar reyndust sterkari á taugum og lönduðu sætum sigri.
Hjá Grindavík var Michele DeVault stigahæst með 26 stig og 10 fráköst og Joanna Skiba var með 16 stig og 5 stoðsendingar.

Mynd: Karfan.is