Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur kom færandi hendi í íþróttahúsið í dag en félagið gaf hjartastuðtæki. Magnús Sigurðsson, formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur og Kári Ölversson meðstjórnandi færðu Hermanni Guðmundssyni yfirmanni íþróttamannvirkja bæjarins tækið sem Magnús sagði að þyrfti vonandi aldrei að nota!
Milli jóla- og nýárs fékk knattspyrnumaður í firmamóti hjartastopp. Ekkert hjartastuðtæki er fyrir hendi í íþróttahúsinu og því þurfti að hlaupa yfir í sundlaugina til þess að ná í tækið þar. Sem betur fer fór allt vel að lokum en þarna sannaðist að nauðsynlegt er að hafa tæki í íþróttahúsinu.
Hermann þakkaði þeim félögum kærlega fyrir höfðinglega gjöf og sagði að hjartastuðtækið auki öryggi iðkenda í íþróttahúsinu. Tækið er nákvæmtlega sömu gerðar og er í sundlauginni.

Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)






