Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Stakkavík ehf. í Grindavík ætlar að ryðja nýjar brautir í ferðaþjónustu með vorinu með því að bjóða ferðamönnum upp á að kynna sér fiskvinnsluna í fyrirtækinu og setjast síðan að snæðingi í matsalnum og gæða sér á dýrindis fiskréttum. Stakkavík hefur fengið Guðfinn Friðjónsson til þess að stýra þessu verkefni en hann hefur mikla reynslu í matseld.
Að sögn Guðfinns hefur hann kynnt þetta verkefni, sem ber yfirskriftina ,,Xperience fish", hjá ferðaskrifstofum og fengið mjög jákvæð viðbrögð. Nýjungin felst í því að kynna undirstöðu atvinnuveg þjóðarinnar með því að bjóða ferðamönnunum að koma inn í fiskvinnslusalinn og sjá þannig framleiðsluna með eigin augum. Í Stakkavík er kjöraðstaða en þar er pallur með glervegg og glergólfi og hægt að sjá niður þar sem verið er að snyrta fiskinn. Þá er glæsilegur matsalur með útsýni inn í salinn. Að sjálfsögðu verður boðið upp á ferskt og gómsætt hráefni.
Guðfinnur segir að þetta fari af stað með vorinu en undirbúningur er nú í fullum gangi. Hann segir að þetta styðji aðra ferðaþjónustu í Grindavík, eins og t.d. Saltfisksetrið, og sé jákvætt innlegg í ferðaþjónustuna.
Guðfinnur hefur tekið saman möppu með myndum þar sem sýnt er ferlið frá því aflinn er veiddur og farið er með hann í land og inn í hús. Myndirnar sem fylgja hér með eru úr þeirri myndaseríu.
Hér sést útsýnispallurinn í fiskvinnslusalnum í Stakkavík. Þarna fá ferðamenn einstakt tækifæri til þess að kynna sér undirstöðu atvinnugrein þjóðarinnar.
Hér er útsýnið sem blasir við ferðamönnum sem koma út á pallinn, þarna sést fólk að störfum við snyrtingu.
Í skemmtilegum matsal með útsýni í fiskvinnslusalinn fá ferðamennirnir að gæða sér á besta fiskmeti í heimi.
Snyrting í fullum gangi.
Einn af bátum Stakkavíkur á veiðum. Leifur Guðjónsson með einn gulan.