Menningar- og bókasafnsnefnd nr. 65

Ár 2010, þriðjudaginn 23. febrúar var haldinn 65. fundur í menningar- og bókasafnsnefnd Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofunni og hófst kl. 16:00

Mætt: Kristín Gísladóttir formaður, Harpa Guðmundsdóttir og Kristín Þorsteinsdóttir. Einnig sat fundinn Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.

Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

Dagskrá:

1. 0902124 - Bókasafnið
Á fundinn mætti Margrét Gísladóttir forstöðumaður bókasafnsins.

- Húsnæðismál safnsins. Bæjarstjórn hefur hafnað erindi bókasafnsins varðandi tillögu forstöðumanns um breytingu á sal bæjarstjórnar sem ein leið til úrbóta á húsnæðismálum safnsins. Nefndin harmar afstöðu bæjarstjórnar og að ekki hafi verið komið með neinar tillögur til úrbóta fyrir húsnæði bókasafnsins sem þarf bráðnauðsynlega að fá úrlausn í húsnæðismálum sínum. Nefndin óskar eftir fundi með bæjarráði sem fyrst til að fara yfir stöðu húsnæðismála bókasafnsins.

- Forstöðumaður lagði fram tölulegar upplýsingar sem sýna að útlán hafa aukist má milli ára sem og aðsókn.

- Vorfundur forstöðumanna almenningsbókasafna verður haldin í Grindavík í byrjun maí. Fundurinn verður í Northern Light Inn. Áætlað er að fundargestir verði ca 25 - 30 manns.


2. 0901070 - Breyting á notkun húsnæðis úr geymsluhúsi í safnhús.(brunastigi á Flagghús)

Lagt fram bréf Erlings Einarssonar vegna Flagghússins dags. 12.02.2010
Nefndin bendir á að Flagghúsið hafi mikið menningarlegt og sögulegt gildi fyrir Grindavíkurbæ og þykir miður að málefni Flagghússins skuli vera með þessum hætti sem fram kemur í bréfinu. Hvetur nefndin hlutaðeigandi aðila til að leysa málin í sátt og samlyndi.

3. 0911039 - Menningarverðlaun

Lagðar fram þær tilnefningar sem borist hafa en frestur til að skila inn tilnefningum rann út þann 18. febrúar sl. Ákvörðun um verðlaunin verða tekin fyrir á næsta fundi nefndarinnar þann 9. mars n.k. Starfsmanni nefndarinnar falið að skoða með verðlaunagrip.

4. 0811030 - Menningarvika í Grindavík

Drög að dagskrá lögð fram til kynningar.

5. 0902123 - Viðburða- og menningardagskrá Grindavíkur

Lagt fram til kynningar. Dagskráin verður kynnt á ráðstefnu, Fiskur undir steini, laugardaginn 27. febrúar n.k. Á ráðstefnunni sem fer fram í Saltfisksetrinu verður kynning á menningu og ferðaþjónustu 2010.

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 17:20.

Kristín Gísladóttir
Harpa Guðmundsdóttir
Kristín Þorsteinsdóttir