Svo jöfn eru lið Grindavíkur og Snæfells að getu að fremstu körfuboltaspekingar þjóðarinnar treysta sér ekki til þess að spá hvort liðið fer með sigur af hólmi í úrslitaleiknum á morgum. Þjálfari Snæfells á von á rosalegum leik og segir Grindavíkurliðið mjög vel mannað.
En fyrst að spekingunum. Á karfan.is eru viðtöl við spekingana Sigurð Hjörleifsson og Einar Árna Jóhannsson.
Umboðsmaðurinn Sigurður Hjörleifsson er nýkominn heim frá Svíþjóð þar sem hann las yfir nýja samninginn hjá syni sínum Jakobi Erni sem leikur með Sundsvall Dragons. Sigurður vílaði þess vegna ekki fyrir sér að rýna lítið eitt í bikarúrslitaleik Snæfells og Grindavíkur í karlaflokki sem fram fer í Laugardalshöll á morgun.
Hvernig leggst bikarúrslitaleikur Snæfells og Grindavíkur í þig?
Verður taumlaus skemmtun í fullri Laugardalshöll.
Hvað mun skipta mestu máli í þessum leik?
Vörnin og fráköstin skipta höfuðmáli. Fleiri sóknarvopn Snæfells eiga líka eftir að vega þungt.
Hvaða leikmenn gerir þú ráð fyrir að láti mikið á sér bera í leiknum?
Hjá Grindavík Darrell Flake, og Ólafssynir. Snæfell, Hlynur frákasta guru, Jón Ólafur & Siggi Þ.
Hvernig munu Friðrik og Ingi Þór leggja upp leiki sinna liða?
Friðrik reynir væntanlega að ná upp góðum hraða og að koma Paxel í stuð. Ingi Þór að koma boltanum mikið í teiginn í byrjun til að losa um skytturnar í liðinu.
Hvernig fer þetta svo?
Framlenging þar sem annað liðið vinnur.
Þá er röðin komin að Einari Árna Jóhannssyni að rýna í Subwaybikarúrslitin 2010. Einar Árni er yfirþjálfari yngri flokka í Njarðvík en stýrði Breiðablik á síðasta tímabili í Iceland Express deild karla. Við báðum Einar að deila sínum hugrenningum um bikarúrslitaleik Snæfells og Grindavíkur í karlaflokki með okkur og gerir hann ráð fyrir ógurlegri dramatík á morgun og að úrslitin ráðist ekki fyrr en á lokasekúndum leiksins.
Hvernig leggst bikarúrslitaleikur Snæfells og Grindavíkur í þig?
Þessi leikur leggst rosalega vel í mig. Mér finnst þessi tvö lið hafa spilað best undanfarið ásamt KR og þessi lið eru áþekk að því leytinu til að þarna eru margir fanta varnarmenn, hrikalega traustir kallar á blokkinni og ef út í það farið þeir tveir langbestu inside"allaround" í Flake og Hlyn, og svo frábærar skyttur í liggur við öllum leikstöðum.
Hvað mun skipta mestu máli í þessum leik?
Varnarleikurinn númer eitt, tvö og þrjú. Það vantar ekki sóknarvopnin í þessi lið og bæði lið hafa gott jafnvægi í sínum leik. Þjálfararnir reyndir og hafa svosem verið í þessari stöðu áður. Heilsa leikmanna getur líka haft áhrif en ég veit að það hefur verið e-ð hnjask á báðum bæjum síðustu vikurnar.
Hvaða leikmenn gerir þú ráð fyrir að láti mikið á sér bera í leiknum?
Einn af styrkleikum beggja liða er að þarna eru margir sem geta stigið upp. Burton, Hlynur og Siggi munu allir spila stórt hlutverk, Hlynur er bestur í boltanum hérna heima í dag, en ég tel að vægi leikmanna eins og Nonna Mæju og Emils Þórs geti skipt sköpum þeirra megin - Nonni er einn erfiðasti sóknarmaðurinn í þessari deild að mínu mati.
Flake, Brenton og Páll Axel verða allir í stórum hlutverkum hinum megin en svo held ég að bræðurnir Ólafssynir séu í stórum rullum þegar kemur að uppgjöri þessa leiks hjá gulum og Arnar Freyr sömuleiðis þar sem leikstjórnunin þarf að vera í lagi í svona leik. Arnar er með mikla reynslu og þekkir ferlið til sigurs svo hans þáttur verður stór í leiknum. Þannig að ef ég dreg þessa langloku saman þá snýst þetta um hvorum megin breiddin mun skína skærar.
Hvernig munu Friðrik og Ingi Þór leggja upp leiki sinna liða?
Einfalda útgáfan hljóðar upp á öfluga vörn, fráköst og baráttu út í eitt. Sóknarmegin eru bæði lið með mikla ógn fyrir utan en þurfa að passa að halda góðu jafnvægi og fara mikið með sinn sóknarleik í gegnum Hlyn/Flake. Einhverjir myndu telja að hraðinn yrði vopn Grindavíkur og Snæfell myndi heldur vilja halda þessu í halfcourt bolta en Grindvíkingar fengu miklu meira jafnvægi í sinn leik með komu Flake og ég tel þá fyrir vikið fjölhæfari en oft áður.
Hvernig fer þetta svo?
Þegar stórt er spurt! Ég held að þetta verði ógurleg dramatík og ráðist á lokasekúndum. Þetta verður leikurinn sem var næst mesta dramatíkin í sögu bikarsins, á eftir ´99 þegar Njarðvík lagði Keflavík í framlengingu með ógleymanlegum hætti. Ég spái 87-86 en kúlan sýnir mér hvorki gult og blátt né hvítt og rautt svo hugsanlega verður bara framlengt og læti.
Þjálfari Snæfells, Ingi Þór Steinþórsson, er í viðtali á heimasíðu Snæfells. Þar segir hann m.a.:
,,Hvernig líst þér á mótherjana í Grindavík, hvar er styrkleiki og hvar er veikleiki þeirra?
"Mér líst vel á Grindavík, þeir eru með mjög gott lið og hugsanlega eru þeir að koma saman með sitt sterkasta lið í vetur eftir mikil meiðslavandamál á lykilmönnum. Ungu strákarnir hjá þeim einsog Ólafur Ólafsson hafa nýtt það tækifæri mjög vel. Þeir eru vel mannaðir líkt og við og þekkja vel hvorn annan. Grindavíkurliðið hefur unnið mjög vel í sínum veikleikum sem var varnarleikurinn hjá þeim í upphafi móts, en Herra Suðurnes 1984, Friðrik Ragnarsson, hefur heldur betur stoppað í götin hjá þeim og er liðið á blússandi siglingu."
Hvað leggur Snæfell áherslu á í sínum leik og hvar liggur okkar strykleiki á vellinum?
"Við ætlum að leggja okkur alla fram við að ná samheldni í sókn og vörn, þegar sá gallinn er á okkur erum við ansi sterkir. Við höfum góðan hóp sem við þurfum að fá til að skila framlagi til hvors annars og þá skína styrkleikar okkar vel út í dagsbirtuna."