Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Fisktækniskólinn óska eftir að ráða verkefnastjóra með aðstöðu í Grindavík í fullt starf. Meðal verkefna eru:
- Ráðgjöf og þjálfun.
- Skipuleggja námskeið.
- Aðstoða fyrirtæki við að útbúa námskeið.
- Mat á raunfærni.
- Ýmis verkefni tengd menntun og þjálfun í sjávarútvegi.
- Ýmis önnur verkefni samkvæmt samkomulagi.
Menntun og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun.
- Gjarnan þekking á sjávarútvegi og vinnslu sjávarafurða.
- Metnaður, áhugi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum.
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum er sjálfseignastofnun sem hefur sem markmið að efla endur- og símenntun á Suðurnesjum. Miðstöðin skal leitast við að greina þarfir fyrir fræðslu á þjónustusvæði sínu og einbeita sér jafnt að atvinnulífinu sem og einstaklingum.
Fisktækniskólinn er samstarfsverkefni fræðsluaðila á Suðurnesjum, sveitarfélaga, fyrirtækja í sjávarútvegi og stéttarfélaga og hefur að markmiði að efla og styrkja grunnmenntun á sviði veiða, vinnslu og fiskeldi.
Umsóknarfrestur um starfið er til 24. febrúar.
Nánari upplýsingar um starafið veitir Ólafur Jón Arnbjörnsson í síma 894 6046 og einnig má senda inn fyrirspurn á netfang olijon@fss.is