Athygli er vakin á því að Lögreglan á Suðurnesjum hefur sett upp sérstakt netfang í Grindavík fyrir ábendingar frá bæjarbúum. Netfangið er grindavik@logreglan.is. Þá hefur verið settur upp hnappur á heimasíðu Grindavíkurbæjar, neðarlega til vinstri á forsíðunni, og með því að smella á hann fást nánari upplýsingar. Hægt er að koma með ábendingar til lögreglu t.d. um hraðakstur, kvartanir og ýmislegt fleira.
Í samstarfi við Lögregluna á Suðurnesjum er starfandi lögregluþjónn í Grindavík á lögreglustöðinni við Víkurbraut. Þar er Sigurður Bergmann með viðveru frá 07:30-15:30.
Hægt er að hafa samband við lögregluna með því að senda tölvupóst á netfangið grindavik@logreglan.is
eða hringja í:
Neyðarnúmerið 112
Upplýsingasíma Lögreglunnar á Suðurnesjum 444-2200
Fíkniefnasímann gjaldfrjálst númer 800-5005.