Í gær var afhjúpuð stytta til minningar um Albert Guðmundsson en styttan stendur fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ. Það var Albert Guðmundsson, langafabarn Alberts, sem afhjúpaði styttuna. Við þetta tilefni flutti Eysteinn Húni Hauksson, yfirþjálfari yngri flokka Grindavík, ávarp þar sem hann rakti knattspyrnuferil Alberts sem var fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í knattspyrnu. Eysteinn hefur undanfarin misseri viðað að sér heimildum um feril Alberts og er með bók í bígerð.
Albert Guðmundsson varð fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í knattspyrnu þegar hann skrifaði undir samning við franska 1. deildarfélagið Nancy 29. júlí 1947. Þegar horft er yfir knattspyrnusöguna er Albert að margra mati fremsti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi og sá sem lengst hefur náð.
Albert ólst upp hjá Val, en lék síðar með ÍBH þegar hann snéri heim úr atvinnumennsku. Ferill Alberts erlendis er einkar glæsilegur - hann lék með Glasgow Rangers í Skotlandi, Arsenal í Englandi,Nancy í Frakklandi, AC Milan á Ítalíu, Racing Club í Frakklandi og að síðustu Nice í Frakklandi.
Albert var formaður KSÍ 1968 - 1973 og býr knattspyrnuhreyfingin enn að störfum hans á þeim vettvangi.
Listamaður verksins er Helgi Gíslason en einnig kom landslagsarkitektinn Reynir Vilhjálmsson að staðsetningu verksins.