112 dagurinn var haldinn um allt land fimmtudaginn 11. febrúar sl. eins og undanfarin ár, meðal annars í Grindavík. Samstarfsaðilar um framkvæmd dagsins voru Neyðarlínan, Ríkislögreglustjórinn, Brunamálastofnun, slökkvilið, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Barnaverndarstofa, Landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Flugstoðir.
Í ár var sjónum beint sérstaklega að aðkomu hins almenna borgara að vettvangi slysa, veikinda og annarra áfalla. Fyrstu viðbrögð almennings geta skipt sköpum um afdrif fólks og hvernig til tekst með björgun. Mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir að allir geta þurft að takast á við slíkar aðstæður.
Neyðarvarnarnefnd Grindavíkurdeildar stóð fyrir kynningum á námskeiðum í almennri og sálrænni skyndihjálp í nokkrum fyrirtækjum bæjarins og leiðbeinendur í sálrænum stuðningi bauð Slysavarnafélaginu Þórkötlu upp á kynningu á sálrænum stuðningi.
Með þessu vill Grindavíkurdeild hvetja fyrirtæki til að búa sitt starfsfólk undir að geta brugðist rétt við með því að læra skyndihjálp, þekkja neyðarnúmerið 1-1-2 og hvernig best er að haga samskiptum við neyðarverði. Einnig vill deildin vekja athygli á mikilvægi sálræns stuðnings, forvarna og slysavarna.
Grindavíkurdeild Rauða kross Íslands hefur á sínum vegum 3 leiðbeinendur í sálrænum stuðningi og 2 leiðbeinendur í almennri skyndihjálp. Hægt er að fá hjá þeim allar frekari upplýsingar um námskeiðin.
Námskeið í Sálrænum stuðningi:
Ágústa Gísladóttir, 8231922, tryllirgk@simnet.is
Björk Sverrisdóttir, 8958686, bjorksv@hive.is
Valdís Kristinsdóttir, 6637617, valdis@grindavik.is
Skyndihjálparnámskeið:
Laufey Birgisdóttir, 6597595, Laufey@hss.is
Hjördís Rósa Halldórsdóttir, 6617041, rosa.halldors@simnet.is