Fótboltastelpurnar í meistaraflokki kvenna eru að fara út í söfnun á raftækjum sem ekki eru lengur í notkun á heimilum landsins (mega vera biluð tæki) og veita þeim framhaldslíf. Stelpurnar gera þetta í samstarfi við Græna framtíð ehf sem sérhæfir sig í endurnýtingu á raftækjum. Stelpurnar ganga í hús í kvöld, fimmtudaginn 11. febrúar n.k. og vonandi geta sem flestir hjálpað til við að koma þessum hlutum á réttan stað í endurvinnslu.
Stelpurnar safna eftirtöldum tækjum:
GSM símum,
fartölvum,
stafrænum myndavélum,
stafrænum upptökuvélum,
prenthylkjum,
leikjatölvum,
MP3 spilurum,
GPS tækjum og
tölvuskjám.
Í tilkynningu segir: ,,Ef þú einhverra hluta vegna getur ekki afhent okkur þína hluti þennan tiltekna dag þegar við bönkum upp á þá endilega hafðu samband í síma 869-5570 ( Petra Rós) eða 893-4272 (Gauja) og við annað hvort sjáum til þess að dótið verði sótt til þín eða þú færð að vita um stað sem þú getur komið með hlutina á.
Tekið af heimasíðu Grænnar Framtíðar ehf:
Markmið félagsins:
Græn framtíð ehf. sérhæfir í endurnýtingu á raftækjum. Markmiðið með starfseminni er að draga úr því magni rafeindabúnaðar sem endar á sorphaugum landsins og stuðla að endurnýtingu á slíkum búnaði í gegnum innlenda samstarfsaðila. Sá búnaður sem safnast er sendur út til vottaðra endurnýtingarfyrirtækja víða um heim. Með endurnýtingu á raftækjum er hægt að búa til heilt raftæki með litlum kostnaði því ekki þarf að búa til glænýtt tæki."