Krakkarnir í Hópsskóla fengu góða gjöf á dögunum því körfuknattleiksdeildin færði öllum bekkjum skólans körfubolta að gjöf, tvo í hvern bekk, eða samtals 10. Við vígslu skólans gaf Verksýn öllum bekkjunum fótbolta og því eru krakkarnir í Hópsskóla öllum stundum í boltaleikjum í frímínútunum. Boltarnir eru merktir bekkjunum og hver bekkur ber ábyrgð á sínum boltum.
Nemendurnir í Hópsskóla segja: ,,Takk fyrir okkur!" Á myndinni eru nokkrir körfuboltakrakkar í 2. H.