Heimasíðunni hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Framsóknarfélagi Grindavíkur: „Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, mætir á fund í félagsheimili Framsóknarfélags Grindavíkur að Víkurbraut 27 þriðjudaginn 9. febrúar kl. 20:30. Vonumst við til að Grindvíkingar fjölmenni og spyrji hann spjörunum úr. Einnig eigum við von á því að Sigurður Ingi, 1. þingmaður framsóknarmanna í Suðurkjördæmi mæti á staðinn.
Eins og ávallt eru allir velkomnir í Arnarborgina okkar framsóknarmanna og gerum okkur væntingar um fullt hús að sjálfsögðu"