Þann 19. febrúar nk. verða tíu ár frá því að Reykjaneshöllinn var vígð. Í tilefni þess standa starfsmenn Reykjaneshallar fyrir afmælismóti þar sem meistaraflokkar félaganna á Suðurnesjum taka þátt, alls sex lið. Leikið verður í tveimur riðlum. Í A riðli eru Grindavík, Njarðvík og Þróttur Vogum, í B riðli eru Keflavík, Reynir og Víðir. Sigurvegarar í hvorum riðli leika síðan til úrslita. Mótið hefst 27. janúar og lýkur föstudaginn 19, febrúar.
Reykjaneshöllinn var fyrsta knattspyrnuhúsið í fullri stærð á Íslandi og óskabarn knattspyrnumanna enda var engin smá umferð um húsið fyrstu árin þar til önnur hús komu til sögunnar. Í dag eru ein sex önnur hús með fulla vallarstærð á landinu og nokkur í hálfri stærð, eins og Hópið í Grindavík.
Leikjaniðurröðun í Reykjaneshallarmótinu:
27.1 B riðill kl. 19:00 Keflavík - Víðir
28.1 A riðill kl. 20:00 Grindavík - Þróttur V
03.2 B riðill kl. 19:00 Reynir - Keflavík
04.2 A riðill kl. 20:00 Þróttur V - Njarðvik
11.2 A riðill kl. 19:00 Njarðvík - Grindavík
12.2 B riðill kl. 20:00 Víðir - Reynir Úrslitakeppni
18:2 kl. 19:00 Leikið um 5. sæti (A 3 - B 3)
19.2 kl. 18:00 Leikið um 3. sæti (A 2 - B 2)
19.2 kl. 20:00 Leikið um 1. sæti (A 1 - B 1)
Leikjaniðurröðun er birt með fyrirvara á að leikdagar gætu breyst.