Grindavík gerði sér lítið fyrir og skellti toppliði Njarðvíkur með 102 stigum gegn 99 í frábærum körfuboltaleik í úrvalsdeild karla í körfubolta. Páll Axel Vilbergsson átti stórleik og skoraði 32 stig fyrir Grindavík en maður leiksins var Ólafur Ólafsson, hann kom inn á og skoraði 20 stig og setti niður ótrúlega þriggja stiga körfu, lengst utan af velli með mann í bakinu, þegar 26 sekúndur voru eftir og skotklukkan að renna út og náði fjögurra stiga forskoti fyrir Grindavík sem gerði útslagið.
Hjá Grindavík vantaði Þorleif Ólafsson vegna meiðsla en segja má að Ólafur bróðir hans hafi tekið við keflinu.
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 32, Ólafur Ólafsson 20, Darrell Flake 15, Brenton Brimingham 14, Ómar Sævarsson 8, Arnar Freyr Jónsson 5, Björn Brynjólfsson 5, Guðlaugur Eyjólfsson 3.
Staðan í deildinni er þessi:
1. KR 14 12 2 1339:1134 24
2. Njarðvík 14 11 3 1259:1068 22
3. Keflavík 14 11 3 1277:1078 22
4. Snæfell 14 10 4 1310:1129 20
5. Stjarnan 14 10 4 1221:1151 20
6. Grindavík 14 9 5 1331:1160 18
7. Hamar 14 6 8 1179:1205 12
8. ÍR 14 5 9 1158:1263 10
9. Tindastóll 14 4 10 1150:1280 8
10. Fjölnir 14 3 11 1112:1288 6
11. Breiðablik 14 2 12 1079:1270 4
12. FSU 14 1 13 975:1364 2
Mynd: www.vf.is