Miðasala fyrir 75 ára afmælishóf UMFG þann 6. febrúar nk. gengur vel að sögn Eiríks Leifssonar sem á sæti í undirbúningsnefndinni. Hann segir að mikil stemmning sé í bænum fyrir afmælinu og það stefni í rífandi stemmningu í íþróttahúsinu sem verður breytt í glæsilegt samkomuhús. Þar munu veisluborð svigna undan dýrindis þorramat, frábærir skemmtikraftar stíga á stokk, veislustjóri er útvarpsmaðurinn góðkunni Freyr Eyjólfsson og hljómsveitin Í svörtum fötum leikur fyrir dansi.
Búist er við um 400 manns í þorramatinn en fyrir ,,gikkina" þá má geta þess að einnig verður veislumatur fyir þá. 20 ára aldurstakmark er á ballið. Knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildir UMFG sjá um í sameiningu að halda afmælishófið. Að sögn Eiríks er mikið spurt um miðana og á hann von á góðri aðsókn.
Miði á afmælishófið og ballið kostar 6.000 kr. Miði eingöngu á ballið kostar 2.900 kr. Hægt er að kaupa miða í Bókabúðinni, Palómu og í Gula húsinu og með því að panta í síma 863 2040 og 861 5004. Sérstök tilboð verða í gangi fyrir stærri hópa.
Dagskráin afmælishófsins er eftirfarandi:
- Húsið opnar kl. 18:30.
- Glæsilegt þorrahlaðborð að hætta Bjarna Óla (Bibbans).
- Veislustjóri Freyr Eyjólfsson, útvarpsmaður.
- Verðlauna- og orðuveitingar í umsjá Gunnlaugs Hreinssonar, formanns UMFG.
- Tenórarnir tveir, Davíð og Stefán taka lagið og fara með gamanmál.
- Grindvíska sveitin Stigamenn tekur lagið.
- Bæjarbragur eftir Dædu.
- Happdrætti með glæsilegum vinningum.
- Hljómsveitin Í svörtum fötum leikur fyrir dansi.