Grindavíkurvegur var lokaður í kvöld eða frá kl. 18 til 22 þegar vörubíll með tengivagni valt á veginum við Seltjörn og lenti tengivagninn ofan á bíl franskra ferðamanna sem sluppu ótrúlega vel. Þeir voru fluttir með minni háttar áverka á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Vegurinn var lokaður á meðan unnið var að því að fjarlægja bifreiðina og tengivagninn af veginum við erfiðar aðstæður vegna veðurofsans.