Byltingakenndir ljósastaurar

  • Fréttir
  • 13. janúar 2010

Nýju ljósastaurarnir á Grindavíkurveginum, við innkeyrsluna í bænum, eru þeir fyrstu sinnar tegundar hér á landi en þeir leggjast saman sé ekið á þá og valda því minna tjóni en hefðbundnir ljósastaurar. Að sögn Gylfa Sigurðsson, verkefnastjóra hjá Vegagerðinni eru þessir 14 nýju ljósastaurar frá finnska fyrirtækinu Kapu, sem hefur framleitt yfir 30.000 ljósastaura þessarar gerðar síðan 1994, en þeir hafa verið settir upp á Norðurlöndum, Eystrasaltslöndunum, Bretlandi og víðar.  Þeir hafa á hinn bóginn ekki verið settir upp á Íslandi fyrr en í Grindavík nú í árslok 2009.  

Þeir uppfylla kröfur skv. staðlinum ÍST EN 12767:2007 og er vottaðir sem slíkir.  Þeir eiga einnig að ráða við mikinn vindhraða og þar með álag frá vindi á Íslandi. Samkvæmt staðlinum eru ljósastaurar flokkaðir í þrjá meginflokka, HE (high energi), LE (low energi) og NE (no energi) eftir því hversu mikla orku þeir taka upp við ákeyrslu.  Kapu ljósastaurarnir í Grindavík falla undir flokkinn HE og taka því upp mikla orku.  

,,Við ákeyrslu gefa staurarnir eftir og eftirgjöfinni mætti kannski best lýsa með því að þeir falli saman eða krumpist saman.  Kosturinn við þessa gerð ljósastaura er að þeir eiga að leggjast tiltölulega mjúklega yfir bifreiðina, sem ekur á þá, en kastast ekki frá henni, sem gæti valdið öðrum vegfarendum t.d. gangandi vegfarendum skaða.  Samkvæmt framleiðandanum Kapu, hefur verið ekið á slíka staura yfir 400 sinnum og hafa þeir ávallt reynst eins og til var ætlast," segir Gylfi.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun