Það er alltaf gleðilegt þegar unga kynslóðin leggur góðu málefni lið og hér í Grindavík er ekki óalgeng sjón að krakkarnir séu að safna fyrir góðum málefnum fyrir utan Nettó með hlutaveltu.
Margir hafa lagt Rauða krossinum lið með þessum hætti og eru meðfylgjandi myndir frá liðnum árum en því miður eru ekki nöfn með þeim öllum, segir á heimasíðu Rauða krossins í Grindavík.
Tombólubörn á Íslandi leggja sitt af mörkum við hjálparstarf með því að gefa Rauða krossinum það fé sem safnast þegar þau halda tombólur. Árlega halda tvö til þrjú hundruð börn tombólur og safna 400-500 þúsund krónum sem varið er til að aðstoða börn víðsvegar í heiminum sem búa við mjög kröpp kjör og erfiðar aðstæður.
Sjá fleiri myndir á http://www.redcross.is/Apps/WebObjects/RedCross.woa/wa/dp?name=grindavik_eldrifrettir&detail=1018438