Bæði karla- og kvennalið Grindavíkur í körfubolta innbyrtu tvö dýrmæt stig í úrvalsdeildunum um helgina. Páll Axel Vilbergsson fór hamförum hjá körlunum og skoraði 54 stig þegar Grindavík burstaði Tindastól með 124 stigum gegn 85 en afar sjaldgæft er þegar íslenskur leikmaður rýfur 50 stiga múrinn. Því má með sanni segja að Palli hafi verið einn í heiminum.
Tölfræði Páls Axels var ótrúleg. Hann hitti úr 8 af 11 2ja stiga skotum, úr 10 af 18 3ja stiga skotum og úr 8 af 12 vítaskotum. Grindavík hafði undirtökin og hafði gott forskot í hálfleik, 68-41. Darrel Flake skoraði 24 stig fyrir Grindavík, Ólafur Ólafsson 14 og Ómar Örn Sævarsson 11.
Grindavík er í 5. sæti með 16 stig en fjögur lið eru efst og jöfn með 18 stig; Stjarnan, Njarðvík, KR og Keflavík.
Kvennalið Grindavíkur gerði sér lítið fyrir og skellti Hamri í Hveragerði með 87 stigum gegn 76 en þarna áttust við liðin í 2. og 3. sæti. Eftir fyrsta leikhluta var jafn 25-25 en síðan tók Grindavík öll völd á vellinum og staðan í hálfleik var 48-40 Grindavík í vil. Allt Grindavíkurliðið lék vel, átta leikmenn komust á blað og greinilegt að liðsheildin eflist með hverjum leiknum.
Michelle DeVault skoraði 29 stig fyrir Grindavík en hún hitti úr 9 af 13 þriggja stiga skotum sínum! Íris Sverrisdóttir skoraði 13, Petrúnella Skúladóttir 12, Helga Hallgrímsdóttir 10 og Jovana Lilja Stefánsdóttir 9.
Þar með komst Grindavík upp í 2. sætið í deildinni með 16 stig líkt og Hamar en KR er efst með 24.