Matthías Guðmundsson húsvörður í grunnskólanum vísiteraði Hópsskóla í morgun. Kollegi hans Sveinbjörn Jónsson tók á móti honum og var myndin af þeim félögin tekin á kaffistofu Hópsskóla í morgun sem hefur fengið nafnið Krýsuvík. Þá hefur eldhús skólans fengið nafnið Brimketill!
Matthías sagði að þeir tveir hefðu ákveðið að stofna samtök húsvarða og hefði Sveinbjörn verið sjálfkjörinn í skemmtinefndina fyrir næstu árshátíð!
Skólastarf Hópsskóla hefur gengið vel þessa fyrstu starfsviku skólans. Helsta vandamálið er að aðalnúmer Hópsskóla er enn ekki komið í gagnið og gengur erfiðlega að finna út úr því hvar vandinn liggur því þjónusuaðilar vísa hver á annan. Vonast er til þess að aðalnúmerið verði komið í gagnið næsta mánudag.
Þessir krakkar voru með töfrasand sem þau léku sér með í Hópsskóla í morgun.