Dagskrá tileinkuð 90 ára afmæli Tómasar Þorvaldssonar, sem fæddist 26. des. 1919 en lést 2.des. 2008, fór fram í sal Björgunarsveitarinnar Þorbjörns í gærkvöldi undir yfirskriftinni Byggð bernsku minnar. Dagskráin var hluti af viðburða- og menningardagskrá Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins sem er í umsjá Sigrúnar J. Franklín. Salurinn var þétt setinn og eftir skemmtilega kvöldstund var Björgunarsveitin Þorbjörn með sína árlegu flugeldasýningu.
Áður en dagskráin hófst bauð kvennadeildin upp á fiskisúpu til styrktar björgunarstarfinu. Guðbjörg Eyjólfsdóttir gjaldkeri sveitarinnar flutt ávarp. Kristinn Þórhallsson rifjaði upp skemmtilegar sögur af kynnum sínum við Tómas sem var fyrsti formaður Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar 1947 og gegndi því starfi til ársins 1977. Þá tók hann við formennsku í Slysavarnadeildinni Þorbirni í Grindavík og sinnti henni til ársins 1987. Óskar Sævarsson sagði einnig frá Tómasi og björgunarafrekum hans og félaga í Þorbirni á sínum tíma en engin sveit á landinu hefur bjargað eins mörgum mannslífum og Björgunarsveitin Þorbjörn.
Ómar Smári Ármannsson sagði einnig frá kynnum sínum af Tómasi og þeirri arfleifð sem hann hefði skilið eftir sig. Gunnar, sonur Tómasar, var svo með mjög skemmtilega myndasýningu frá ævi og störfum Tómasar sem sjálfur var ötull ljósmyndari. Meðal annars voru sýndar myndir sem ekki hafa áður sést opinberlega og var virkilega fróðlegt og gaman að sjá þessar gömlu myndir en í þeim felast mikil menningarverðmæti.
Eiríkur, sonur Tómasar, tók til máls að lokum og tilkynnti að Þorbjörn hf. hefði ákveðið að gefa Björgunarsveitinni Þorbirni eina milljón króna að gjöf.