Á árinu 2009 lönduðu skip Þorbjarnar hf. alls 22.846 tonnum að verðmæti 5.191 milljón króna. Afli frystitogara var 13.610 tonn en afli línubáta var 9.236 tonn. Gnúpur GK 11 var aflahæstur af skipum Þorbjarnar, hann landaði rúmum 5000 tonnum og var aflaverðmætið 1250 milljónir króna.
Afli og aflaverðmæti skipa Þorbjarnar
á síðasta ári var eftirfarandi:
Afli Verðmæti
Gnúpur GK 11. Botnvarpa. 5.070 1.250.000
Hrafn GK 111. Botnvarpa. 4.590 1.185.000
Hrafn Sveinbjarnarson GK 255. Botnvarpa. 3.950 1.075.000
Sturla GK 12. Lína. 2.514 460.099
Ágúst GK 95. Lína. 2.289 427.031
Valdimar GK 195. Lína. 2.128 392.109
Tómas Þorvaldsson GK 10. Lína. 2.305 401.844