Alls bjó 2.841 íbúi í Grindavík þann 1. desember síðastliðinn samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands og hafði fækkað um 8 á milli ára. Hins vegar hefur fjölgað um 217 manns undanfarin fimm ár.
Íbúaþróun í Grindavík undanfarin fimm ár hefur verið með eftirfarandi hætti:
2005 2.624
2006 2.697
2007 2.760
2008 2.849
2009 2.841
Alls bjó 1.471 karl í Grindavík þann 1. desember en 1.370 konur.
Fjölmennasti árgangurinn í Grindavík er 1994 en 66 eru skáðir með lögheimili í Grindavík. Næst koma krakkar sem eru 9 ára á árinu eða 59 og svo þeir sem eru 17 ára, eða 57 talsins.
Á leikskólaaldri er skiptingin eftirfarandi:
Á 1. ári 36
1 árs 52
2 ára 44
3 ára 49
4 ára 50
5 ára 52
6 ára 41