Stelpurnar á hársnyrtistofunni Hárhorninu voru með myndaþema á stofunni í gær í tilefni þess að nú standa yfir leynivinadagar. Af því tilefni var pöntuð myndataka frá einum leynivininum á stofunni og stilltu stelpurnar sér upp og tóku sig vel út enda án nokkurs vafa glæsilegustu hárgreiðslukonur landsins saman komnar á einu og sömu stofunni!
Sérstaklega var beðið um að ljósmynda Gerði Björg Jónasdóttur, með kveðju frá leynivininum.