Kirkjukór Grindavíkurkirkju hélt sína árlegu jólatónleika í gærkvöldi en þetta voru þeir fyrstu undir stjórn nýs organista, Kára Allanssonar. Jafnframt söng stúlknakór kirkjunnar og konurnar í kirkjukórnum sögðu skilið við karlana um stund og sungu nokkur lög. Aðsókn á tónleikana var með miklum ágætum.
Dagskrá jólatónleikanna var hefðbundin og hátíðleg og virkilega vandað til verks. Kirkjukórinn hefur eflst mikið undanfarin ár og stóð sig með mikilli prýði. Hápunktur tónleikanna var þáttur kvennasveitar kirkjukórsins og þegar kirkjukórinn og stúlknakórumm sungu saman. Að loknum tónleikunum var svo boðið upp á kaffi og piparkökur í safnaðarheimilinu.
Tónleikarnir voru í sannkölluðum jólaanda og eru ómissandi hluti af aðventunni.