Jósef gerir nýjan ţriggja ára samning viđ Grindavík

  • Fréttir
  • 12. desember 2009

Jóef Kristinn Jósefsson skrifaði undir nýjan samning við Grindavík til þriggja ára í hangikjötsveislu í Gula húsinu, félagsheimili knattspyrnudeildar, í gærkvöldi en þar var saman kominn hópur velunnara fótboltans. Jósef er einn efnilegasti leikmaður landsins og hefur átt sæti í 21 árs landsliði Íslands í ár og því mikil gleðitíðindi fyrir Grindvíkinga að hann skuli framlengja samning sinn við félagið.

Þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur hefur Jósef átt fast sæti í meistaraflokki Grindavíkur undanfarin þrjú ár. Hann hefur leikið 66 leiki í deild og bikar og skorað 5 mörk.

Í hangikjötsveislu knattspyrnudeildar var mikið um dýrðir. Útgerðarfélagið Þorbjörn sem hefur verið einn helsti bakhjarl fótboltans í Grindavík endurnýjaði samning sinn við knattspyrnudeildina en Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar, skrifaði undir samninginn. Þá var skrifað undir ráðningasamning við Eirík Leifsson, nýjan framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar.

Bjarni Andrésson, fyrrum leikmaður, stjórnarmaður og formaður knattspyrnudeildar, fagnaði 60 ára afmæli í dögunum og afhenti knattspyrnudeildin honum gjöf í tilefni af því.

Eftir glæsilega hangikjötsveislu var slegið á létta strengi en ræðumenn kvöldsins voru tveir. Sigurður G. Guðjónsson lögfræðingur fór á kostum þar sem hann kom víða við. Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims rifjaði upp veru sínu í Grindavík en hann var leikmaður liðsins 1982 og var m.a. valinn leikmaður ársins hjá félaginu.

Að síðustu tók Árni Johnsen fram gítarinn og lék á als oddi og sagði skemmtilegar sögur á milli þessi sem menn tóku lagið hástöfum.

Bjarni Óla sá um hangikjötið og framreiddi það af sinni alkunnu snilld.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir