Tónleikar verða fyrir eldri borgara í Grindavík næsta mánudag í Víðihlíð kl. 15:00. Ólafur Þór Þorgeirsson, Gunnlaugur Valtýsson (bróðir Geirmundar) og Sigurður Hannesson leika á harmonikku og gítar létt lög, bæði þekkt dægurlög og svo jólalög.
Að sögn Ólafs Þórs gerðu þeir þetta einnig í fyrra í Víðihlíð og mæltist það vel fyrir og því var ákveðið að endurtaka leikinn í ár.
Eldri borgarar í Grindavík eru hvattir til að mæta.