Foreldrafélagið á leikskólanum Laut stóð fyrir hinu árlega jólaföndri á leikskólanum í gær. Jafnframt notaði foreldrafélagið tækifærið og gaf leikskólanum fjórar myndavélar, eina á hverja deild leikskólans. Þar með verður hægt að setja enn fleiri myndir af börnunum inn á heimasíðu leikskólans.
Góð mæting var í jólaföndrið að vanda. Fleiri myndir á heimasíðu leikskólans http://leikdal.simnet.is/Myndir/J%C3%B3laf%C3%B6ndur%20Foreldraf%C3%A9lagsins/