Aðventa er tími vonar og í dag, sunnudaginn 28. nóvember, er fyrsti sunnudagur aðventunnar. Í Grindavíkurkirkju var messa í morgun. Þar var kveikt á spádómskertinu. Jafnframt var skírn í kirkjunni. Að henni lokinni fóru börn og foreldrar þeirra í safnaðarheimilið í sunnudagaskóla Grindavíkurkirkju en messan hélt áfram í kirkjunni.
Við kveikjum einu kerti á.
Hans koma nálgast fer
sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesúbarnið er.
Þegar skuggar skammdegisins þéttast, kveikjum við aðventuljós, sem vitna um komu ljóssins eilífa sem rýmir burt öllu myrkri. Aðventuljósin í gluggunum og aðventukransarnir eru í raun bæn: "Kom, Drottinn Jesús."
Aðventukransinn hefur fjögur ljós og eru þau tendruð eitt af öðru á sunnudögum aðventunnar. Fyrsta kertið kallast spádómakertið og minnir á spámenn Gamlatestamentisins sem boðuðu fæðingu frelsarans. Annað kertið kallast Betlehemskertið og minnir á bæinn þar sem Jesús fæddist og ekkert rúm var fyrir hann nema í fjárhúsinu. Þriðja kertið kallast hirðakertið og minnir á þá sem fyrstir fengu að heyra boðskapinn um fæðingu hans sem er Kristur Drottinn. Loks er fjórða kertið englakertið sem minnir á söng englanna um dýrð Guðs og frið á jörðu. Ljós og hljómar, góðvild og gleði jóla taka undir þann söng og bera birtu af þeirri dýrð og friði.