Í dag er síðasta tækifærið fyrir verslunar- og þjónustuaðila í Grindavík sem ætla að skrá sig og vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf starfsmanna Grindavíkurbæjar í ár. Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Grindavík. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Grindavíkurbæjar gegn framvísun gjafabréfsins. Eftirfarandi aðilar hafa staðfest þátttöku:
Björgunarsveitin Þorbjörn
Bókbúðin
Eldvarnir Grindavíkur
Fótaaðgerðastofa Christine
Heimagistingin Borg
Hárgreiðslustofan Hárhornið
Hársnyrtistofan Rossini
Hársnyrtistofan Hársel
Heilladís - Nuddstofa Steinþórs
Hérastubbur bakari
Kaffihúsið Bryggjan
Northern Light Inn
Knattspyrnudeild UMFG
Lukku-Láki veitingar
Nettó
Nuddstofan Englaberg
Orkubúið
Saltfisksetur Íslands
Salthúsið
Snyrtistofa Hildar
Snyrti- og fótaaðgerðarstofa Margrétar
Stjörnufiskur
Söluturninn
Tækniráð
Verslunin Palóma
Vélsmiðja Grindavíkur
Öryggisþjónusta Grindavíkur
Þeir aðilar sem vilja vera með eru beðnir að senda upplýsingar og staðfestingu á heimasidan@grindavik.is í síðasta lagi fyrir miðnætti í dag, fimmtudaginn 26. nóvember.
Stefnt er að því að senda gjafabréfin út eins fljótlega í desember og kostur er svo hægt sé að nýta þau fyrir jólin.