Jóladagatali Grindavíkur verður dreift í öll hús í Grindavík á föstudaginn. Jóladagatalið er samstarfsverkefni Grindavíkurbæjar og Grindavík Experience og er ætlað að veita íbúum upplýsingar um viðburði í bæjarfélaginu á aðventunni. Jafnframt er þetta hvatning til bæjarbúa til þess að versla í heimabyggð fyrir jólin. Dagatalið er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.
Í Jóladagatalinu eru upplýsingar um þá atburði sem eru á dagskrá á aðventunni og svo tilboð frá verslunum og þjónustuaðilum, á hverjum degi fyrir sig. Þá koma jólasveinarnir einnig við sögu. Jóladagatalið virkar því sem handbók á aðventunni. Yfirskrift Jóladagatalsins er Upplifðu Grindavík!
Í Jóladagatalinu er einnig skemmtilegur jólaleikur Grindavík Experience. Þegar verslað er í þremur verslunum/fyrirtækjum sem eru á listanum í dagatalinu og búið að fá stimpla, þarf að skila seðlinum í kassa í verslunarmiðstöðinni. Jólasveinninn mun draga út fjölda vinninga kl. 18:00 á Þorláksmessu.
Upplýsingar um viðburðina í menningar- og íþróttalífinu verða einnig á viðburðardagatalinu á www.grindavik.is
Jóladagatal Grindavíkur er einnig hægt að nálgast hér.