Eins og greint var á frá á heimasíðunni í vikunni var Eiríkur Leifsson ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar og tekur hann við af Ingvar Guðjónssyni um áramótin. Eiríkur var fenginn til að svara nokkrum laufléttum spurningum sem Grindvíkingur vikunnar.
Nafn? Eiríkur Leifsson.
Fjölskylduhagir? Er í sambúð með Laufeyju Vilmundardóttur og saman eigum við dótturina Birtu sem er tveggja ára.
Starf? Er tæknimaður hjá Skyggni þessa stundina en verðandi framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Grindavíkur.
Uppáhalds-
...maturinn? Hamborgarahryggur með tilheyrandi og bökuðum baunum.
...drykkurinn? Ísköld lítil kók.
...staðurinn? Sófinn minn.
...leikarinn? Sean Connery.
...bókin? DaVincy lykillinn eftir Dan Brown.
...bíómyndin? Star Wars.
...íþróttamaðurinn? Ólafur Stefánsson og svo Ásgeir Sigurvinsson.
...liðið? Auðvitað Grindavík og Chelsea að sjálfsögðu.
Hvert er þitt lífs mottó? Ég nota ekki mottó . Eins og einn maður sagði þá eru mottó bara fyrir menn eins og Ingvar Guðjónsson.
Hvað er best við Grindavík? Grindavík er mjög góður bær, það er gott fólk hérna, gott að ala upp börn hér og mikið íþróttalíf sem við getum verið mjög stolt af.
Hvers vegna sóttir þú um starf framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar? Eftir að hafa verið með puttana í kringum fótboltann undanfarið og haft alveg gríðarlega gaman og gott af, þá fannst mér að þetta væri eitthvað sem ég gæti hugsað mér að að starfa við og greip tækifærið þegar starfið var auglýst.
Í hverju felst starfið aðallega? Að hafa yfirumsjón með daglegum rekstri knattspyrnudeildarinnar.
Verðum við með frambærilegt lið næsta sumar? Það held ég við þyrftum kannski að bæta við okkur 1-2 mönnum, þá er þetta komið.
Hver eru þín helstu áhugamál? Fótbolti er þar efstur á blaði en einnig les ég mikið.
Eitthvað að lokum? Ég vil hér með hvetja alla til að mæta á völlinn í sumar og styðja við okkar menn.