Nemendur á miðstigi í grunnskólanum komu saman á sal skólans í gær til að syngja og um leið minnast fæðingar Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu sem haldinn var hátíðlegur víða um landið.
Thelma í 10. PE las örlítinn sögubút fyrir krakkana af því tilefni og kennararnir Unndór og Pálmar sáu um undirspil og stjórnuðu samsöngnum af mikilli röggsemi.
Fleiri myndir má sjá á http://skolinn.grindavik.is/myndir/0910/thema/dagurisltungu16nov/index.html