Kaffihúsið Bryggjan stendur fyrir ýmsum menningarviðburðum á næstunni. Á mánudag er dagur íslenskrar tungu en þetta er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og verður bókmenntakvöld af því tilefni.
Ólafur Þórarinsson kemur með harmoníkuna sína og spilar íslenska tónlist. Bjarni Harðarson rithöfundur, blaðamaður, bóksali og fyrrverandi alþingismaður mun lesa úr bók sinni ,,Nú skal dansa".
Sigurjón Vikarsson rithöfundur og eigandi prentsmiðjunnar Grágásar les úr nýútkominni bók sinni ,,Grjótaþorpið".
Aðalgeir Jóhannsson netagerðarmaður les kafla úr ný útkominni ævisögu Birnu Óladóttur og Dagbjarts Einarssonar ,,Það liggur í loftinu" eftir Jónas Jónasson útvarpsmann.