Vatnsæð fór í sundur austur í Þórkötlustaðahverfi um klukkan eitt í nótt. Af þeim sökum var lokað fyrir kalda vatnið strax í morgunsárið og verður kaldavatnslaust í Þórkötlustaðahverfi fram eftir degi. Hálfgert stöðuvatn myndaðist í kring þar sem vatnsæðin fór í sundur.
Myndirnar voru teknar á vettvangi í rökkrinu í morgun.