Áhugi hefur kviknað á einhvers konar samstarfi á milli atvinnu- og ferðamálanefndar Grindavíkurbæjar og menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar. Bæjarfélögin eiga ýmislegt sameiginlegt í ferðaþjónustu að því er fram kemur í fundargerð atvinnu- og ferðamálanefndar.
Nefndin ætlar að bjóða menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar í heimsókn seinni partinn í janúar til þess að nefndirnar geti borið saman bækur sínar.
Þá samþykkti nefndin að fela upplýsinga- og þróunarfulltrúa að hafa samband við háskóla landsins til að kanna hvort nemendur hefðu áhuga á því að vinna lokaverkefni í sínu námi fyrir nefndina. Ýmsar hugmyndir voru ræddar, m.a.:
- Hvaða eftirspurn er eftir þjónustu í Grindavík miðað við þá atvinnuuppbyggingu sem er framundan á svæðinu.
- Könnun um Suðurstrandarveginn og hvaða áhrif fullkláraður vegur hefur á ferðaþjónustu, umferð, íþróttamannvirki, atvinnuuppbyggingu o.fl.
- Hvað þarf til þess að fá skemmtiferðaskip til þess að hafa viðkomu í Grindavík?
Nefndin ætlar einnig að senda Bláa lóninu bréf þar sem óskað er eftir fundi til þess að ræða hver aðkoma Grindavíkurbæjar getur verið varðandi auglýsingaskilti, auglýsingabæklinga o.fl. fyrir bæinn við Bláa lónið til þess að fá fleiri ferðamenn til Grindavíkur.