Bæjarráð Grindavíkur samþykkti á dögunum samning við Salty Tours um akstur milli Grindavíkur og Reykjanesbrautar í veg fyrir SBK rúturnar. Jafnframt var ákveðið að leita til um samvinnu við Voga um tenginguna Vogar-Reykjanesbraut-Grindavík. Erindið var tekið fyrir á bæjarráðsfundi Voga á dögunum og þar var því hafnað.
Í bókun bæjarráðs Voga segir: ,,Bæjarráð þakkar Grindvíkingum fyrir erindið, en getur ekki tekið þátt í verkefninu eins og sakir standa."
Þess má geta að Vogar hafa lagt hjólabraut úr bænum að Reykjanesbrautinni og sett þar upp farþegaskýli.