Jóna Kristín Þorvaldsdóttir bæjarstjóri sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund í gærkvöldi en sem kunnugt er hættir um næstu mánaðarmót og tekur við sem sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli. Í tilefni þess var bókað í fundargerð bæjarstjórnar:
,,Þar sem þetta er síðasti bæjarstjórnarfundur Jónu Kristínar sem bæjarstjóra Grindavíkur vill bæjarstjórn Grindavíkur þakka henni fyrir hennar störf í þágu Grindavíkurbæjar, bæði sem bæjarstjóri og prestur og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi á sínum gömlu heimaslóðum."