KR og Grindavík háðu magnaða rimmu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla síðasta vetur þar sem KR hafði betur í oddaleik um titilinn. Liðin mætist í íþróttahúsi KR í kvöld kl. 19:15 og að vanda verða umgjörð KR-inga góð, þeir bjóða up á BBQ fyrir leik og þá mun KR-TV sýna beint frá leiknum.
Íslandsmeistarar KR hafa unnið alla þrjá leiki sína í deildinni til þessa en Grindavík unnið einn en tapað tveimur. Grindavík mætir KR án Kana því Amani Daanish var látinn fara í vikunni en búast má við að nýr Bandaríkjamaðurinn mæti innan skamms. KR teflir fram gjörbreyttu liði frá síðasta vetri en eru með hörku lið.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að styðja við bakið á sínum mönnum í kvöld.