Auðlindastefna Grindavíkurbæjar hefur vakið athygli. Í Saltfisksetrinu í dag var auðlindastefnan kynnt fyrir sveitarstjórnarmönnum í nágrannasveitarfélögunum. Fulltrúar Voga og Hafnarfjarðar ásamt Tryggva Harðarsyni sveitarstjóra í Þingeyjarsveit komu á fundinn.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir bæjarstjóri opnaði fundinn en fulltrúar verkfræðistofunnar EFLU, ráðgjafar Grindavíkurbæjar í auðlindamálum, kynntu stefnuna. EFLA var fengin til þess að fá yfirsýn yfir stöðu virkjunarmála, jarðhitaréttinda og nýtingar auðlinda til frambúðar í lögsögu Grindavíkur og aðstoða við mótun auðlindastefnu. Árni Bragason náttúrufræðingur og Hafsteinn Helgason verkfræðingur, starfsmenn EFLU, fluttu framsögu og í kjölfarið voru fyrirspurnir og umræður.
Fundurinn tókst í alla staði vel og augljóst að Auðlindastefna Grindavíkurbæjar er farin að vekja verulega eftirtekt. Tryggvi Harðarson hafði á orði að Grindavíkurbær væri frumkvöðull í þessum efnum sem fyrsta sveitarfélagið á landinu sem mótar auðlindastefnu með þessum hætti.
Myndirnar voru teknar á fundinum í dag.