Grindavík hefur sagt upp samningi við bandaríska leikmanninn Amani Daanish þar sem hann þótti ekki standa undir væntingum. Daanish, sem lék m.a. með Harlem Globetrotters á sínum tíma, var ekki í þeim gæðaflokki sem búist var við og því var þessi ákvörðun tekin. Amani Daanish verður engu að síður áfram á Íslandi því hann hefur samið við Tindastól á Sauðárkróki.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort nýr bandarískur leikmaður verði fenginn í stað Daanish.