Ađalfundur SSS - Ályktun um atvinnumál

  • Fréttir
  • 19. október 2009

Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum var haldinn um helgina en Grindavík á sem kunnugt er aðild að samtökunum. Aðalfundurinn samþykkti ályktun um atvinnumál þar sem skorað er á ríkisstjórn að afturkalla ákvörðun umhverfisráðherra varðandi raforkulagnir um Suðurnes.

Ályktunin hljóðar svona: „Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, haldinn í Reykjanesbæ 17. október 2009, skorar á Alþingi og ríkisstjórn að tryggja eðlilegan framgang atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum og standi vörð um fiskveiðar og vinnslu. Aðalfundurinn lýsir áhyggjum sínum á breytingum sem gætu sett atvinnugreinina í fullkoma óvissu.

Aðalfundurinn krefst þess að ríkisstjórnin afturkalli nú þegar ákvörðun umhverfisráðherra sem tefur vinnu við raforkulagnir um Suðurnes. Uppbygging atvinnulífsins á Suðurnesjum er háð línulögnum og öll töf á lagningu þeirra er atlaga að uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu.

Mesta atvinnuleysi á landinu er á Suðurnesjum, auk þess sem meðaltekjur íbúa á svæðinu eru undir landsmeðaltali. Þörfin fyrir uppbyggingu og ný, vel launuð störf er því hrópandi. Fundurinn krefst þess að ríkisstjórn og Alþingi leggist á árarnar með sveitarstjórnarmönnum, verkalýðsfélögum, atvinnurekendum og íbúum á svæðinu og stuðli að því að ný atvinnutækifæri líti dagsins ljós.

Ef ráðherrar ríkisstjórnarinnar vinna með Suðurnesjamönnum, geta þúsundir manna fengið atvinnu að nýju."

Mynd: www.vf.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!